Ruglið í Kela fært í letur
Bekkurinn minn
Leitarbox

31.05.2007 18:28:10 / Keli

Fimmtudagur 31. maí

4 km. rosalega góður hraði!

Vek athygli á því að ég er að vinna á næturvöktum núna (frá 20-08 ) og finnst ég frekar harður að verað hlaupa líka! Í sumar verð ég aðrahverja viku í Reykjavík að vinna og hina í Borgarnesi að vinna. Mun skokka aðra vikuna og taka spretti og lyfta og þannig hina vikuna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 01:48:23 / Keli

Mun Liverpool kaupa Snoogy Doogy?

HAHA, ég sá að eigendur Liverpool sögðust þessvegna myndu kaupa Snoogy Doogy ef knattspyrnustjóri þeirra vildi það. Þetta var fjölmiðlayfirlýsing þeirra vegna beiðni Rafa Benitez um pening til leikmannakaupa fyrir næsta tímabil. Þetta er fyndnasta komment sem ég hef séð! http://www.liverpool.is/?cat=1&view=newsone&nid=9962

Mér datt í hug að athuga hver þessi Snooky Doogy væri og gúgglaði helvítið. Þá fann ég það út að þetta væri íslenskt undrabarn, honum er líkt við sjálfan Pele!

http://www.the-spine.com/archives/959


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 17:25:56 / Keli

Miðvikudagur 30. maí

6 km.

Ég skil ekki þessi innlegg, ég stífna einsog ég hafi aldrei hlaupið áður! Samt er ég kominn með vöðva í lappirnar. Greinilega eitthvað að þessu drasli!

Einkunnirnar eru komnar. Ég náði en var langt undir getu og þarf að taka þetta markvissara á næsta ári. Enga djöfulsins meðalmennsku!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 16:33:44 / Keli

Ruslaferð

Sjitt, ég og Nonni tókum til endurvinnanlegt drasl hérna heima áðan og fórum með það í Sorpu. Það tók allan daginn maður! Það var voða lítið mál að skila pizzukössum og mjólkurfernum og dagblöðum, en flöskurnar voru martröð!

Við vorum með fjóra poka af flöskum og dósum, sem voru ekki flokkaðar eftir tegundum heldur hent í poka á tilviljanakenndan hátt (einsog hingaðtil hefur tíðkast á mínum heimilum og ekki verið neitt vesen). En þegar við komum á staðinn þar sem á að skila flöskum og dósum var okkur gert ljóst að það þyrfti að flokka þetta drasl eftir tegundum. OK, við fórum með pokana okkar út úr skúrnum og flokkuðum þetta drasl eftir tegundum útá plani á stuttermabolum í rokinu (tók ca. 15 mínútur) og fórum svo aftur inn til að skila. En þá var okkur sagt að það þyrfti líka að telja þetta. Þá fórum við í staðinn í Endurvinnsluna hf. tilað sjá hvort þar væri talið fyrir mann. En svo var ekki, bara einhverjar vélar sem maður setur draslið í. Við reyndum að nota þessar vélar en þar sem við vorum búnir að krumpa fullt af dósum og flöskum þá virkaði það ekki. Við þurftum að fara útá plan þar líka til að telja helvítis draslið! Eftir klukkutímalanga ruslareisu komum við svo aftur heim, búnir að skila 74 glerflöskum, 115 dósum og 160 plastflöskum og 3600kr. ríkari. Tímakaup 1800kr. á mann.

Já, lífið er ekki allsstaðar jafn auðvelt og á Akureyri. Þar eru dósirnar flokkaðar fyrir mann, ókeypis í strætó og engir stöðumælar. Og þar er heldur ekki alltaf rok!

Hey, ef ykkur vantar íslenskt orð yfir dramaqueen þá er það einfaldlega dramatík.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 13:21:51 / Keli

Aðeins meira af NBA

Ég ætlaði bara að láta vita að ég spáði að Detroit og San Antonio myndu mætast í úrslitum NBA-deildarinnar (sókn vinnur leiki, vörn vinnur titla muniði) og það mun rætast. Þetta get ég nánast fullyrt. Einnig að San Antonio verða meistarar í 6-7 leikja seríu.

Ég ætla líka að fullyrða hér að Tim Duncan er besti kraftframherji sem nokkurn tímann hefur spilað körfubolta nokkurs staðar, nokkurn tíma í heiminum! Titillinn í ár verður hans fjórði! Hér er allratímaúrvalið mitt, sem Tim Duncan er nú kominn inní:

C. Wilt Chamberlain, PF. Tim Duncan, SF. Larry Bird, SG. Michael Jordan, PG. Magic Johnson.

Bekkurinn: Bill Russell, Oscar Robertson, John Stockton, Karl Malone, Kareem-Abdul Jabbar, Shaquille O'neal, Kobe Bryant, Kevin Garnett.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:31:47 / Keli

Um nýliðavalið

Nýliðavalið í NBA-deildinni er á næstu grösum, í gær fór lottóið fram og sigurvegarar voru Portland Trail Blazers. Þeir náðu mestu útúr síðasta nýliðavali: Áttu annan valrétt og náðu í LaMarcus Aldridge (sem var meiddur meira og minna allt tímabilið en er hefur stórkostlega hæfileika) og einnig þann sjöunda (minnir mig), þar sem þeir náðu í Brandon Roy. Hann varð krýndur nýliði ársins fyrir þetta tímabil. Og nú á þessu ári unnu þeir semsagt fyrsta valrétt en höfðu aðeins 5,3% möguleika!

Það sem er best við þetta allt saman er það hvaða leikmenn Trail Blazers eiga kost á: Tveir efnilegustu menn sem sést hafa síðan LeBron og Carmelo komu inní deildina verða í nýliðavalinu. Þetta eru þeir Greg Oden og Kevin Durant. Portland munu pottþétt taka Greg Oden í fyrsta, hann er einn svakalegasti center sem sést hefur síðustu ár. Menn segja að frábærir miðherjar komi inní deildina á svona 10 ára fresti og fullyrða að nú komi einn slíkur inn. Oden er líkt við David Robinson, því hann er gríðarlega öflugur varnarmaður og ver skot einsog skrímsli en getur líka rifið niður sóknarfráköst og refsað varnarmönnum andstæðinganna og stimplað SPALDING merkið í andlitin á þeim! Greg Oden er fæddur árið 1988 og er 213cm. og ca. 130 kíló! Gríðarlegur happafengur fyrir Portland og ef þeir ná að halda þessum mönnum geta þeir byggt upp meistaralið á ca. 5 árum. Verið á varðbergi fyrir Portland.

Seattle náði svo öðrum valrétti og mun að öllum líkindum taka Kevin Durant. Hann er hávaxinn og þroskaður leikmaður sem getur skotið fyrir utan, innan og troðið. Gríðarlega öflugur sóknarmaður og ég spái því að hann verði nýliði ársins á næsta ári. Hann spilar reyndar sömu stöðu og er svipaður og Rashard Lewis, þannig að kannski skipta þeir honum fyrir einhvern eldri gaur, t.d. einhvern miðherja. Ég held þó að Kevin Durant sé of verðmætur leikmaður til að nota í svoleiðis rugl.

Atlanta á þriðja valrétt og taka líklega Brandan Wright, hávaxinn kraftframherja, sem mun styrkja lið þeirra mikið.

Grizzlies eiga fjórða. Þeir eru taparar lottósins (höfðu 25% líkur á fyrsta) en þeir gætu náð sér í frábæran kínverskan leimann, sem Yao Ming hefur talað mikið um: Hann heitir Li Jianlian og er fæddur 1984. Hávaxinn og íþróttamannslegur gaur sem gæti látið til sín taka á næstu árum en hann þarf mjög líklega eitt eða tvö ár til að aðlagast deildinni.

Ég er svo mikill spámaður!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 16:29:18 / Keli

Þriðjudagur 22. maí

6 km.

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 19:26:11 / Keli

Mánudagur 21. maí

11,5 km. á u.þ.b. 50 mín.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 20:11:58 / Keli

Föstudagur 18. maí

5 km.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 13:59:03 / Keli

Skrítið

Muniði ég var að tala um að ég hafi kúkað á mig í einu prófinu...

Hvað haldiði? Ég kúkaði gulli!


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 18:57:53 / Keli

Miðvikudagur 16. maí

4 km.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 12:26:32 / Keli

Klúður

Jæja prófin eru búin en ég fokkaði upp síðasta prófinu sem ég ætlaði að fá 10 í. Ég féll á tíma og gerði ekkert af viti. Það er frekar asnalegt miðað við að ég var með þetta á hreinu fyrir prófið.

Djöfull er ég svekktur maður!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 09:25:34 / Keli

Mánudagur 14. maí

4 km.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 12:23:59 / Keli

Sunnudagur 13. maí

4km. á 15:41 (vegalengd mæld á GoogleEarth). Það sem ég hélt áður að væru 4km. er í raun 3,5km. Ég tók tímann á mér núna í fyrsta sinn og er drulluánægður með hann! Ég er að nálgast fínt form og get kannski kíkt í 1 eða 2 götuhlaup í sumar tilað sjá hvar ég stend í 5km. Til samanburðar er þetta svipaður hraði og ég hljóp 3km. á í Framfarahlaupinu í júlí 2004 og það var í keppni og 1km. styttra. Miðað við árstíma þá er ég miklu betri en það sumar, þá var ég í minu besta formi og hljóp 10km. á 39:32 og 5km. á 18:28 (skv. hlaup.is).

Nóg komið af monti.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 11:12:03 / Keli

Lýðræði smíðræði

Sjitt nú verður að fara að breyta þessu kjördæmarugli. Eitt atkvæði hlýtur að vera eitt atkvæði sama hvaðan það kemur maður!

Samfylking, VG og Frjálslyndir fengu fleiri atkvæði heldur en stjórnin (88.111 á móti 88.098 ) og miklu fleiri ef maður tekur Íslandshreyfinguna með (94.064). Semsagt stórnarandstaðan fékk tæplega 6000 atkvæðum fleira en stjórnin en getur samt ekki myndað ríkisstórn! Þetta er bara einsog Gore vs. Bush!

Þetta er svo yndislega fokking frábært og æðislegt eitthvað.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 99229