|
31.10.2006 17:25:43 / Keli
Ég hef ekkert að segja en...
...léttsveiflukenndur instrumental jazz er bestur þegar maður er að
lesa:
John Coltrane - I'm Old Fashioned
Dave Brubeck - When You Wish upon a Star
Ben Webster - Makin' Whoopee
Coleman Hawkins & Ben Webster - You'd Be So Nice to Come Home
To
Björn Thoroddsen - Tico Tico
Charlie Parker - Laird Baird
Flís - Kveðjukossinn
Jesper Thilo - Thou Swell
Miles Davis - My Funny Valentine
Oscar Peterson - Moanin'
Oscar Peterson & Stéphane Grappelli - Looking at You
Oscar Peterson Trio & Milt Jackson - Work Song
Stan Getz & The Oscar Peterson Trio - I Want to Be Happy
Guðmundur Ingólfsson-Blús fyrir Birnu
Það er nú ekki víst að allir hafi áhuga á þessu. En ég held að það
sé miklu betra að hlusta á eitthvað svona heldur en tónlist með
söng eða of miklum látum. Söngurinn hefur þau áhrif á mann að maður
fer að hugsa um textann og truflast í lestrinum. Of mikil læti
trufla líka.
Kv. Keli
»
30.10.2006 00:39:54 / Keli
Hafa ekki allir heyrt kennara sína eða foreldra segja þessa
setningu: „Þú ert ekki að læra fyrir mig, þú ert að læra fyrir
sjálfan þig“. Ég komst um daginn að því að þessi fullyrðing er
röng. Auðvitað er maður að læra fyrir sjálfan sig, en maður er líka
að læra fyrir kennarana sína og foreldra sína.
Eitt af því sem foreldrar ættu að láta sig mestu skipta er hvernig
börnum þeirra vegnar í lífinu. Það getur líka virkað hvetjandi að
hugsa að maður geti launað foreldrum sínum tilvistina með því að
þau sjái mann verða að þroskuðum einstaklingi. Nám er ein leið til
að þroskast.
Kennarar vilja líka auðvitað sjá nemendur sína þroskast, svo þeim
finnist vinna þeirra hafa einhvern tilgang. Þeir vilja líka
uppskera einsog þeir sáðu. Maður er líka að læra fyrir þá.
Ég segi einsog The Streets: Stop me if I'm wrong, stop me if I'm
wrong...
»
27.10.2006 15:54:21 / Keli
Í dag var helmingi erfiðara að fletta Morgunblaðinu en venjulega.
Ástæðan var sú að önnur hver blaðsíða var heilsíðuauglýsing fyrir
sjálfstæðismenn sem vilja komast á þing. Ég er ógeðslega pirraður á
þessum risastóru auglýsingum. Er þetta keppni í hver er með stærstu
auglýsinguna, einhver efnishyggja í gangi?
Ég hélt að stjórnmálamenn ættu að sannfæra kjósendur sína um að
þeir geti komið málefnum á framfæri og vinna þannig traust
flokksmanna sinna. Í staðinn er mynd af skælbrosandi smettum troðið
uppí andlitið á manni svo manni svelgist á kaffinu! Ég gat ekki séð
að neinn þessara einstaklinga hefði einhverja ákveðna stefnu. Ég sá
bara jakkaföt, dragtir og hvítar tennur. Bráðum verður þetta þannig
að við fáum sleikjó og karamellur inn um bréfalúguna á morgnanna í
boði Guðfinnu S. Bjarnadóttur.
Fokking drasl.
»
27.10.2006 11:25:44 / Keli
Vindurinn röltir sæll milli algrænna laufanna.
honum er hlýtt, sólin er að brosa til hans.
Ég ligg og hlusta á fótatakið
og gangstéttin faðmar mig að sér.
Neinei, það er bara skítaveður einsog venjulega. Ég held mig
innandyra en er að spá í að verða mér úti um kaffidreitil. Ég var
að vinna í gærkveldi í Borgarnesi. Síðasta Mr. Skallagrímsson
sýningin í bili. Mér líst mjög vel á næstu sýningu sem verður í
Landnámssetrinu. Líklega segi ég seinna frá henni.
gaur
»
25.10.2006 15:57:48 / Keli
Nú er loksins farið að reyna á mann í þessu námi. Það er svoldið að
verið að bæta við verkefnum og umfang þeirra smámsaman eykst. Mér
finnst þetta þægilegt vegna þess að pressa af þessu tagi virkar
hvetjandi á mig. Nú þarf ég að skipuleggja mig betur, vakna fyrr og
minnka hlutfall almenns andleysis í daglega lífinu. Fleiri þættir
tilverunnar virðast auðveldari fyrir vikið. Mér líst vel á þetta.
Þetta var einmitt það sem ég var að vona að myndi gerast, þegar ég
skráði mig á tónvinnslunámskeið og í háskóla: Að ég myndi neyðast
til að skipuleggja mig aðeins.
Þegar á reynir er ég nefnilega fínn í að skipuleggja mig. Vinn
verkin á skilvirkan hátt og fer létt með hluti. En þegar lítið
reynir á þessa skipulagshæfileika er einsog allt sé vesen, þó það
sé ekki mikið verk. Þá hef ég ekki yfirsýn yfir hvað ég á eftir að
gera. Ég lít á hlutina einsog ég megi við því að gera þá síðar,
vegna þess að þeir eru svo litlir og ómerkilegir. Þá endar bara með
því að allur þessi tími sem ég hafði til stefnu er orðinn að engu
og verkin eru unnin í snarhasti í snarkasti.
Alltaf er maður að læra.
»
22.10.2006 15:28:52 / Keli
Og Alheimssálin verðlaunaði manninn fyrir gott framtak: Ég las
moggann upp til agna áðan. Og rétt áður en ég lokaði honum, sáttur
við þann sannleika sem hann hafði fært mér, birti hún mér verðlaun
í stjörnuspekisdálkinum:
„Dagurinn verður frábær fyrir einkalífið en kannski ekki
jafnstórkostlegur fyrir peningamálin - til styttri tíma litið. En
eins og alltaf borgar það sig til lengri tíma að fjárfesta í
sjálfum sér".
Já, alltaf borgar það sig til lengri tíma að fjárfesta í sjálfum
sér.
Það er gaman að velta fyrir sér innihaldi textans með síðasta
bloggpistil minn til hliðsjónar. Haldiði að heimurinn umbuni manni
með þessum hætti eða er þetta bara svona tilviljun? Búum við
kannski öll yfir heilögum sannleik og fáum verðlaun fyrir að sýna
hann öðrum?
Ég veit það ekki, en mig grunar ýmislegt...
»
22.10.2006 13:37:19 / Keli
Jæja, best að leggja ykkur lífsreglur í fjármálum. Sjálfur er ég á
hvínandi kúpunni en ég veit að ég mun hafa það sæmilegt
einhverntíman, hef ekki áhyggjur af því. En til hvers eru peningar?
Þeir eru auðvitað til þess að maður geti keypt sér mat, svo maður
deyji ekki. En hvað gerir maður við peningana sem verða afgangs?
Lífið snýst um að vera og gera,
ekki um að eiga og eignast.
Ekki kaupa ykkur flottara drasl ef það sem þið eigið virkar.
Fjárfestið í að gera ykkur betri á sem flestum sviðum. Ferðist,
farið á námskeið eða eitthvað. Maður verður líka að átta sig á því
hvenær maður á nóg. Sumir vinna alla daga ævi sinnar til að geta
átt fyrir einhverju en gleyma að njóta þess þegar þeir hafa eignast
það og fara að þræla fyrir einhverju öðru. Það meikar ekki sens.
Það verður bara að vítahring. Maður verður að muna eftir því að
hafa tíma til að geta notið lífsins. Í sama skilningi og maður
telst ríkur sem á mörg börn telst maður ríkur sem á nógan tíma
fyrir sjálfan sig. Time is money. Ekki eyða öllu monníinu í strit
til að eignast eitthvað. Vera og gera, það er málið.
Keli klári ríki/fátæki
»
20.10.2006 00:55:33 / Keli
Fyst Gíslasynir eru byrjaðir að ljóðanördast þá samdi ég limru.
Gunnar hann geystist úr hlaði
með gosflösku fulla af baði
og demantshring stórann.
Til Dalvíkur fór hann
og gifti sig gaur sem hét Daði.
...
»
19.10.2006 11:17:07 / Keli
Kaffisopann sýpur ég,
sá er ósköps virði.
Laxárdalur langur er,
liggur að Hrútafirði.
Afi kenndi mér þetta fyrir svona 16-17 árum síðan.
Nú syng ég þennan kaffióð og sýp kaffið sem óður væri.
Café Roma er ósköps virði en er langt frá Hrútafirði.
Haha, þetta var einsog kynning í þættinum Maður er nefndur.
»
18.10.2006 22:47:23 / Keli
Ég á ekki sérstaklega mikla peninga til að lifa út mánuðinn.
Haldiði að ég lifi?
Ég er búinn að semja tvö lög á tveimur dögum. Jafnvel á sama
sólarhring. Ég lá andvaka í nótt, teygði mig í tölvuna og skrifaði
inn einhverjar nótur í svona klukkutíma. Þegar ég vaknaði mundi ég
ekkert hvernig þetta lag var, en þegar ég hlustaði á það áðan þótti
mér það býsna gott bara. Grípandi viðlag og eitthvað. Svo var
verkefnið í tónvinnsluskólanum í kvöld að búa til partýlag sem við
eigum svo að spila á föstudaginn, þegar allur hópurinn hittist. Ég
var í tímaþröng með þetta lag en ég er helvíti góður að búa til
melódíu, sérstaklega í D-moll (ykkur er væntanlega drullusama).
Lagið var einhvernveginn með reggae grunni en samt var eitthvað
salsa í því. Já, það hljómaði ótrúlega einkennilega.
Á morgun er stefnan tekin á Café Roma fyrir skóla, annan morguninn
í röð, sem yrði met. Ég þarf að flytja fyrirlestur um samanburð á
áhrifum matarmenningar á ímynd Ítalíu og Danmerkur. Það hljómar
kannski jafn einkennilega og lagið sem ég samdi.
Ég nenni ALLS ekki að skrifa neitt gáfulegt. Og enn síður eitthvað
heimskulegt, þannig að þetta blogg verður bara skraufþurrt. Drekkið
bara eitthvað meððí...
Ég er farinn einsog innistæðan á tékkar. 130073.
»
17.10.2006 13:35:00 / Keli
Hvað er þessi sjálfstæðisbelja að gera á bloggsíðunni minni?! Ég
vil ekkert hafa hana!
Ef það er mynd af Guðfinnu S. Bjarnadóttur hérna fyrir ofan þá er
ég ekki að auglýsa hana.
»
17.10.2006 00:13:01 / Keli
Þessi fjögur lög eiga það sameiginlegt að takturinn í þeim
einhvernveginn lætur mann gera svona töffarasvip þið vitið og
takturinn nær völdum á manni. Rosalega einfaldur og grípandi taktur
og allt annað í lagiu einhvern veginn löðrandi sveitt og slefandi
yfir mann. Prófið að hlusta á þessi lög. Maður gerir svipinn
ósjálfrátt!
Gorillaz - Feel Good Inc.
Muse - Supermassive Black Hole
Queens of the Stone Age - Broken Box
Scissor Sister - Tits on the Radio
Datt bara í hug að deila þessu með ykkur.
»
14.10.2006 14:09:05 / Keli
Ég er farinn að fara á hverjum degi inn á Café Roma og lesa blöðin.
Ég er farinn að lesa fréttir og pistla, finna svona smjörþefinn af
umræðunni. Ég er í háskóla, ég er búinn að hafa kosningarétt í
bráðum fjögur ár og hingað til hef ég ekki vitað neitt um
stjórnmál. Eftir því sem ég les meira því vinstrisinnaðri verð ég,
því skeptískari verð ég á aðferðirnar sem stjórnvöld á Íslandi
beita til að fá sínu framgengt.
Hvað ætli stór hluti þjóðarinnar lesi blöðin á hverjum degi einsog
ég? Hvað ætli stór hluti þeirra verði fyrir sömu áhrifum og ég?
Hvað ætli séu margir sem vita ekkert um ástandið? Hvað ætli stór
hluti þeirra stefni á að kjósa sama flokkinn aftur, og svo aftur?
Guðmundur Steingrímsson er meistari.
»
14.10.2006 00:57:11 / Keli
Haltu kjafti hvað það er vont veður í Reykjavík! Ég er kominn heim
af þessum sökum. Ég var á októberfiest við Háskólann ásamt
áttaþúsundsjöhundruðogfjörtíu öðrum gaurum. Það var svo mikið af
fólki þarna að ef maður tók eitt skref frá viðmælendum sínum var
ekki nokkur leið að finna þá aftur í mannhafinu. Í gær var miklu
betri stemning þarna, við sátum með ölkrús og spjölluðum. Í dag
stóðum við með öldós og öskruðum.
Ég hitti eða sá: Sævar, Badda, Árna & Auði, Rannveigu frá
Brandbjerg, Loga Ásbjörns, Fjólu & Guðnýju, Krístínu & Ingu
& Evu úr ferðamálafræðinni, Gumma & Heiðar frá Borgarnesi,
Jónsa, Sveinbjörn úr MA, Steina bögg, Jón Árna & Ívar, Jóa,
Katrínu Árna & Pétur, Helga Vilberg, Andreu, Kristján
rauðhærða, Kötu úr 4.F., Teit, Konna & Bjarka, Stebba G. og
örugglega fullt af öðru liði.
Á morgun ætla ég að vakna, setjast við tölvuna og GERA ÞESSI
HELVÍTIS VERKEFNI. Ég ætlaði að læra í dag en ég gat það varla útaf
októberfestinu í gær. Sú verður ekki raunin í fyrramálið.
Friður.
»
09.10.2006 22:43:18 / Keli
Helgin:
Þreyta
Vonleysi
Samviskubit
Slen
Leti
Framtaksleysi
Rugl
Vitleysa
Þessi vika:
Dugnaður
Þolinmæði
Athygli
Metnaður
Þrautseygja
Skipulag
Umburðarlyndi
o.fl.
Nú verður tekið á því... ...vonandi
»
Síður: 1 2
|